Viðbúnaður er á Keflavíkurflugvelli vegna Boeing 757 þotu sem er að koma til lendingar með brotna rúðu. Samkvæmt upplýsingum frá flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli er engin hætta á ferðum en viðbúnaður er aukinn til öryggis.
Áætlað er að vélin, sem er að koma frá Gander á Nýfundnalandi, lendi hér klukkan 14:45 en ekki stóð til að hún lenti hér en sú ákvörðun var tekin vegna rúðunnar. Ekki er um íslenska flugvél að ræða.