Sex ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í gærkvöldi og í nótt. Sá er hraðast ók mældist á 128 km/klst. þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst. Þá voru tveir ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akstur í Reykjanesbæ í nótt, samkvæmt frétt frá lögreglunni á Suðurnesjum.