Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra gekkst undir aðgerð á Mount Sinai sjúkrahúsinu í New York í dag. Aðgerðin var gerð vegna veikinda sem upp komu fyrir réttri viku og rekja má til meins í fjórða heilavökvahólfi. Utanríkisráðherra heilsast vel að lokinni aðgerð.
Ákvörðun um að aðgerðin yrði gerð í dag þar ytra, var tekin í kjölfar rannsókna sl. föstudag og að höfðu samráði sérfræðinga á Landspítalanum og lækna á Mount Sinai sjúkrahúsinu, segir jafnframt í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
Enn liggur ekki fyrir hversu lengi Ingibjörg Sólrún verður frá vinnu vegna veikindanna.