Jón Magnússon var kjörinn formaður þingflokks Frjálslynda flokksins og Kristinn H. Gunnarsson varaformaður á þingflokksfundi síðdegis, en Kristinn var formaður þingflokksins.
Fram kemur í tilkynningu frá Frjálslynda flokknum, að Guðjón Arnar Kristjánsson formaður flokksins, lagði þetta til á fundinum og var tillaga hans samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Einnig var samþykkt að Grétar Mar Jónsson verði meðstjórnandi í stjórn þingflokks Frjálslynda flokksins.