Stjórn Samtaka iðnaðarins kallar eftir að ríkisstjórn og Seðlabanki marki sér stefnu til langs tíma í efnahagsmálum, tali skýrt og grípi þegar í stað til ráðstafana til þess að greiða úr alvarlegum lausafjárskorti, koma jafnvægi á gengi krónunnar og dragi þannig úr neikvæðum áhrifum niðursveiflu efnahagslífsins.
„Seðlabanki og ríkisstjórn tryggi eðlilega bankastarfsemi
Brýnt er að tryggja eðlilegt flæði gjaldeyris á markaði með öllum tiltækum ráðum, s.s. gjaldeyrisskiptasamningum. Það er nauðsynlegt til þess að koma fjármagni inn á uppþornaðan íslenskan lánamarkað. Seðlabankar um allan heim keppast við að smyrja hjól atvinnulífsins með lausafé. Það ætti íslenski Seðlabankinn líka að gera.
Lækkun vaxta þegar í stað
Þegar í stað á að hefja snarpt vaxtalækkunarferli. Atvinnulífið rís ekki undir þessu vaxtastigi. Enn ein verðbólguholskefla mun ríða yfir að óbreyttu gengi hvað sem vaxtastigi líður. Hratt minnkandi spenna í atvinnulífinu réttlætir myndarlega lækkun.
Maastricht-skilyrðin
Þegar í stað á að gefa út yfirlýsingu um að ríkisstjórn og Seðlabanki hafi sett sér að uppfylla svokölluð Maastricht-skilyrði innan tiltekins tíma, t.d. þriggja ára. Það gefur fyrirheit um stöðugleika.
Samtök iðnaðarins hafa mótað þá stefnu að ganga eigi í ESB og taka upp evru en uppfylling Maastricht-skilyrðanna er eðlilegur og sjálfsagður millileikur.
Jöklabréf
Ríkisstjórn og Seðlabanki verða að gera grein fyrir hvernig á að bregðast við gjalddögum jöklabréfa svo nemur tugum eða hundruðum milljarða á næstu mánuðum.
Samvinna
Ríkisstjórnin á að hafa forgöngu að því að kalla án tafar saman samtök atvinnurekenda, launþega, fjármálafyrirtækja og seðlabankann til þess að vinna að því að greiða sameiginlega úr þeim grafalvarlega vanda sem fyrirtæki og allur almenningur stendur frammi fyrir," að því er segir í yfirlýsingu frá Samtökum iðnaðarins.