Alþingi var sett í dag í skugga kreppu í efnahagslífinu og gengishruns. Nokkurir mótmælendur höfðu tekið sér stöðu fyrir framan Alþingi. Ekki til að vekja athygli á stöðu íslensku krónunnar heldur óréttlátu kvótakerfi.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands sagði þegar hann ávarpaði þingið að það væri erfitt fyrir unga kynslóð sem þekkti einungis allsnægtir og alþjóðahyggju að gera sér í hugarlund þær erfiðu aðstæður sem hefðu blasað við þegar Alþingi ákvað að hefja baráttu fyrir útfærslu Landhelgisgæslunnar. Væri langvarandi barátta fyrir fullveldi og forræði yfir fiskmiðunum höfð í huga sæist best að vandamálin sem nú kölluðu á farsælar lausnir gæfu hvorki tilefni til uppgjafar né örþrifaráða. Sagan kenndi okkur líka að djúpstæð vissa um að réttlæti og sanngirni væri höfð að leiðarljósi og lýðræðisleg umfjöllun og aðhald yrðu alltaf forsendur þess að gagnkvæmt traust ríkti milli þings og þjóðar.