Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað fimmtudaginn 2. október 2008, kl. 19.50.
Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir.
Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en
þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri
umferð hafa þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver
þingflokkur.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða, auk Geirs, Ásta Möller í
annarri umferð og Illugi Gunnarsson í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð verða Steingrímur J.
Sigfússon í fyrstu umferð, í annarri
Katrín Jakobsdóttir og í
þriðju umferð Atli Gíslason.
Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Jóhanna
Sigurðurdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, Össur Skarphéðinsson
iðnaðarráðherra, í annarri og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
í þriðju umferð.
Fyrir Framsóknarflokk tala Guðni Ágústsson, 3. þingmaður
Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Valgerður Sverrisdóttir, 2.
þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Birkir J. Jónsson, 6.
þingmaður Norðausturkjördæmis.
Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, Jón Magnússon í annarri umferð en í þriðju umferð Grétar
Mar Jónsson.