Taka undir tilmæli um hófstillta umræðu

Heimili og skóli - landssamtök foreldra taka undir þau tilmæli sem komið hafa fram í dag um hófstillta umræðu um efnahagserfiðleika, samdrátt og niðurskurð í atvinnulífinu. Í fréttatilkynningu frá samtökunum segir: „Það fylgir því mikil ábyrgð að annast börn, hvar í stétt sem við stöndum. Virðum líðan og tilfinningar barnanna, völdum þeim ekki óþarfa áhyggjum með óábyrgri, einsleitri umræðu. Ábyrgð, væntumþykja, tillitsemi, jákvæðni og von eru gildi sem vert er að virða og virkja á þeim óvissutímum sem nú eru í algleymingi. Börnin eru það dýrmætasta sem við eigum, sú staðreynd gjaldfellur aldrei. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert