Tölvuleikurinn „Kindergarten Killer“, eða Leikskólamorðinginn, sem hefur notið vaxandi vinsælda á netinu, en leikurinn gengur út á að spilarinn gangi vopnaður um ganga leikskóla og skjóti á allt sem fyrir verður. Til að komast upp í næsta borð þarftu fyrst að drepa öll leikskólabörnin á deildinni. Leikurinn rataði m.a. á finnska tölvuleikjasíðu fyrir börn, en var fjarlægður þaðan nú fyrir helgi.Tölvuleikurinn hefur einnig ratað hingað til lands og mátti m.a. finna á síðunni Toppleikir.is.Samkvæmt upplýsingum frá forsvarsmönnum síðunnar hefur leikurinn verið tekinn út.