Atburðir síðustu daga kalla á skýrari rök ESB-sinna

Björn Bjarnason.
Björn Bjarnason.

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir á vefsíðu sinni í kvöld að af öllu því, sem sagt hafi verið hér undanfarna daga í tengslum við hamfarirnar í fjármálaheiminum, séu einkennilegastar yfirlýsingarnar um, að vandræðn sýni að Ísland yrði betur sett innan Evrópusambandsins.

„Enginn fótur er fyrir þessum yfirlýsingum, þegar litið er til þess, sem er að gerast innan ESB þessa dagana. Þar koma menn sér ekki saman um nein sameiginleg viðbrögð heldur tekur hvert ríki ákvörðun með eigin hagsmuni í huga og sætir ámæli, ef eitthvað er gert, sem getur skapað öðrum vanda, eins og Írar máttu reyna, eftir ríkisstjórn þeirra ákvað að tryggja innistæður í bönkum. Síðan hafa fleiri ESB-ríki siglt í kjölfarið, nauðug, viljug. Sannast enn vegna þessa, að enginn er annars bróðir í leik, þegar hagsmunir af þessum toga eru í húfi.

Að öllu athuguðu ættu atburðir síðustu daga að kalla á skýrari og sterkari rök frá þeim, sem vilja Ísland í ESB, frekar en látið sé á þann veg, að nýta eigi núverandi ástand til að knýja á um nýja stefnu gagnvart ESB," segir Björn.

Vefsíða Björns Bjarnasonar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert