Fjöldi folks sem ætlaði að taka út sparifé sitt í höfuðstöðvum Landsbankans í Austurstræti í morgun greip í tómt. Fólki var sagt að koma aftur eftir nokkra daga. Margir voru slegnir óhug og óttuðust um ævisparnaðinn þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda um að sparifé fólks sé óhætt.