Skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt þrjá unga karlmenn í skilorðsbundið fangelsi fyrir að brjótast inn í grunnskólann á Flúðum og stela þar borðtölvum, skjám og fartölvu úr tölvuveri skólans.

Piltarnir frömdu innbrotið í apríl á þessu ári. Einn þeirra var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi en hinir tveir í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Þeir játuðu allir sök.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert