Borgarráð hefur að tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra, samþykkt að fresta fyrirhuguðum framkvæmdum við byggingu stokks undir Geirsgötu og Mýrargötu. Tillagan var samþykkt einróma á fundi borgarráðs í morgun.
Borgaryfirvöld telja ekki rétt að ráðast í kostnað við svokallaða stokklausn í núverandi efnahagsástandi. Forathugun á byggingu samfells stokks eða jarðganga til að flytja meginstraum umferðar milli Sæbrautar og Ánanausta bendir til að beinn kostnaður við jarðgöng geti numið 11, 5 til 12,5 milljörðum en beinn kostnaður við stokk geti numið um 14 milljörðum króna. Óbeinn kostnaður við þætti eins og niðurrif húsa, færslu lagna, hjáleiðir umferðar á framkvæmdatíma og endurgerð yfirborðsgatna er ekki innifalinn í þeim kostnaði.
Í framhaldi af frestun framkvæmda við stokkinn munu Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir í samstarfi við ÍAV, Portus, Austurhöfn og Vegagerðina hefja undirbúning að bráðabirgðalausn til næstu ára. Bráðabirgðalausnin felur í sér að hannaður verður tveggja akreina vegur á umræddum kafla. Við hönnun hans verður tekið mið af því að rjúfa ekki tengingu tónlistar og ráðstefnuhúss við miðborgina. Sérfræðingum á skipulags- og byggingarsviði, umhverfis- og samgöngusviði og framkvæmda og eignasviði verður falið að leiða viðræður við hlutaðeigandi aðila um nánari útfærslu þessarar bráðabirgðalausnar.
Þeim verður jafnframt falið að móta tillögur að framtíðarlausn í samstarfi við vegagerðina og samgönguráðuneytið. Í samþykkt borgarráðs kemur fram að þar verði horft til lausna á borð við jarðgangagerðar með tengingu við Örfirisey, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.