Brown öfundsjúkur?

Jón Bjarnason.
Jón Bjarnason.

Jón Bjarnason, þingmaður VG, segir á bloggsíðu sinni, að kanna eigi nú þegar allar leiðir til að sækja Gordon Brown forsætisráðherra og bresku ríkisstjórnina til saka að alþjóðalögum og heimta bætur.

Ekkert hafi komið fram sem sanni, að Kaupþing banki hafi gerst sekur um brot á breskum lögum, né að hann gæti ekki staðið við skuldbindingar þar í landi ef hann fengi að vera í friði. Heldur einmitt naut starfsemin þar vinsælda og trausts.

„Kannski er það einmitt sú staðreynd sem fór fyrir brjóstið á breskum stjórnvöldum og fyllt þá öfund. Hjartað í Brown var ekki stærra en svo," segir Jón.

Bloggsíða Jóns

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert