Hlaupið í Skaftá er tekið að sjatna, að sögn Odds Sigurðssonar jarðfræðings hjá Vatnamælingum. Oddur sagði að margir jakar væru strandaðir við ofanverða Skaftá svo greinilega sé að minnka í hlaupinu.
Samkvæmt rennslismæli Vatnamælinga við Sveinstind var rennsli árinnar um 1.300 rúmmetrar á sekúndu klukkan 14.00 í dag. Þegar rennslið var mest náði það 1.350 rúmmetrum á sekúndu.
„Það er greinilegt að það minnkar upp við jökul og er hætt að renna úr sumum þeim útföllum sem rann úr í gær og í nótt,“ sagði Oddur, sem flaug yfir hlaupsvæðið í dag. Hann taldi að hlaupið nái hámarki í byggð nálægt miðnætti í kvöld. Oddur taldi ekki að sérstök hætta stafi af hlaupinu í byggð.
„Þetta er ekki stærra hlaup heldur en hefur komið áður. Vegagerðin veit alveg við hverju má búast. Þetta er ekki það versta sem hefur komið,“ sagði Oddur. Starfsmenn Vatnamælinga fylgjast áfram með framgangi hlaupsins í dag.
Jónas Erlendsson, fréttaritari Morgunblaðsins, fór að Skaftá í dag. Hann sagði að áin væri mjög gruggug. „Þetta er miklu, miklu meira en var í sumar,“ sagði Jónas um hlaupið.