Hvalfjarðargöng verða lokuð vegna viðhalds frá miðnætti og til klukkan sex að morgni þrjá nætur í vikunni. Fyrsta lokunin verður aðfaranótt þriðjudagsins 14. október og stendur lokunin til og með aðfaranætur fimmtudagsins 16. október, samkvæmt vef Vegagerðarinnar.