Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins og stjórnarmaður í stjórn og framkvæmdastjórn SA, varar við „innistæðulausum“ samningsbundnum launahækkunum sem eiga að koma til framkvæmda í mars á næsta ári, því fyrirtæki komi ekki til með að ráða við slíkt miðað við aðstæður í þjóðfélaginu. Verði haldið fast við samningsákvæði í þessa veru, muni það þýða að fyrirtæki neyðist til að segja upp enn fleira fólki.
„Baráttan næstu mánuði og misseri mun snúast um að halda atvinnuleysi í lágmarki og ég tel mjög æskilegt að verkalýðshreyfingin og atvinnulífið nái sem bestu samstarfi um að verja störfin í landi. Ætla má að atvinnuleysi aukist ef til launahækkana kemur í byrjun næsta árs því fyrirtækin hafa almennt ekki möguleika á að hækka laun við núverandi aðstæður og yrðu því tilneydd til að grípa til enn frekari uppsagna. Ég hef fulla trú á að fyrirtækin geri allt sem í valdi þeirra stendur til að vinna með verkalýðshreyfingunni í að halda atvinnuleysi niðri. Innistæðulausar launahækkanir munu engu skila, heldur gera öllum erfiðara fyrir.“
Helgi tekur fram að þetta er persónuleg skoðun hans en ekki mótuð stefna SI og SA.