3.143 skráður á atvinnuleysisskrá

mbl.is/ÞÖK

Alls eru 3.143 skráðir á atvinnuleysisskrá í dag samkvæmt tölum sem birtar eru á vef Vinnumálastofnunar. Þar af eru 1.935 skráðir atvinnulausir á höfuðborgarsvæðinu. Í september mældist atvinnuleysi 1,3% en að meðaltali voru 2.229 atvinnulausir í mánuðinum. Vegna samdráttar í efnahagslífinu er líklegt að atvinnuleysið í október muni aukast verulega og verða á bilinu 1,5%-1,9%, samkvæmt upplýsingum á vef Vinnumálastofnunar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert