Aðgerðarstjórn ASÍ vegna efnahagsástandsins

Alþýðusamband Íslands hefur komið á fót sérstakri aðgerðarstjórn með þátttöku landssambanda og stærstu félaga innan hreyfingarinnar.Tilgangurinn er að upplýsa og aðstoða aðildarsamtök ASÍ, trúnaðarmenn og samstarfsaðila á vinnumarkaði í því óvissuástandi sem nú ríkir í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar, að því er segir á vef ASÍ.

„Verkstjórn í þessari nýju aðgerðarstjórn er í höndum forseta ASÍ og formanna landssambanda og stærstu félaga.Þá er unnið í góðu samstarfi við félagsmálaráðuneytið, Vinnumálastofnun, Rauða krossinn og fleiri aðila til að lágmarka skaða fólks í yfirstandandi efnahagsþrengingunum."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert