Hnökrar á gjaldeyrisviðskiptum minnka

Seðlabankinn segir, að á meðan viðskiptabankarnir þrír séu að hefja starfsemi eftir þær breytingar sem átt hafi sér stað á eignarhaldi þeirra hafi orðið tafir á gjaldeyrisviðskiptum. Hnökrarnir fari þó  minnkandi.

Landsbankinn hefur hafið starfsemi undir merkjum nýs eiganda og hann sinnti hluta gjaldeyrisviðskipta í dag. Þegar formbreytingu annarra viðskiptabanka er lokið hefja þeir einnig gjaldeyrisviðskipti.

Tilmæli frá Seðlabanka Íslands frá því síðastliðinn föstudag um temprun viðskipta eru enn í gildi. Bankinn áréttar þó, að tilmælin séu leiðbeinandi. Áfram sé unnið að því að koma gjaldeyrisviðskiptum í rétt horf í samstarfi Seðlabanka Íslands og annarra fjármálastofnana.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert