Vöruflutningabíll með tank fullan af fljótandi sykri valt á hliðina í hringtorginu norðan við Hvalfjarðargöngin um klukkan 19. Bílstjórinn sagðist ekki kenna sér meins en var sendur á sjúkrahús til skoðunar. Unnið er að því að reisa bílinn við en engar tafir munu vera á umferð.