Lögreglan á Akureyri gerði húsleit í íbúð í bænum og lagði hald á um 23 grömm af kannabisefnum, 10 grömm af amfetamíni, 5 grömm af kókaíni og á annað hundrað steratöflur.
Tveir menn á þrítugsaldri voru handteknir í tengslum við málið og viðurkenndi annar mannanna að eiga efnin og einnig að hafa selt fíkniefni á Akureyri fyrr í þessum mánuði.
Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst.