Jafnaðarmenn á Akureyri lýsa yfir fullum stuðningi við þau sjónarmið sem formaður flokksins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur nýverið sett fram um Evrópusambandið. Fram kemur í ályktun frá þeim að innganga í ESB sé eitt brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar.
Með sama hætti
og hin íslenska landsbyggð þurfi á jafnaðarhugsjóninni að halda, sé
aðild að Evrópusambandinu efnhagsleg og félagsleg nauðsyn fyrir íbúa
þessa lands.
„Að loknum ragnarökum nýfrjálshyggjunnar, sem við nú verðum vitni að,
verður ríkisstjórnin að skilgreina samningsmarkmið aðildarviðræðna
vegna inngöngu í ESB. Að þeim loknum fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um
fulla aðild að Evrópusambandinu og upptöku Evru sem framtíðar
gjaldmiðils þjóðarinnar,“ segir í ályktuninni sem Samfylkingin á Akureyri, 60+ á Akureyri og Ungir jafnaðarmenn á Akureyri undirrita.