Álag vegna staðgreiðsluskila fellt tímabundið niður

Viðskiptaráðuneytið hefur í dag beint þeim tilmælum til skattstjóra og tollstjórans í Reykjavík að fellt verði niður tímabundið niður álag vegna þeirra skila á staðgreiðslu sem á eindaga eru í dag og gildi sú niðurfelling í eina viku eða til 22. október nk.

Vísað er til laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, en samkvæmt þeim er  eindagi staðgreiðslu launamanna, útsvars launamanna, álagðra skatta launamanna og tryggingagjalds launagreiðenda og skila á skilagrein vegna september mánaðar í dag.

Hafi launagreiðandi ekki staðið skil á staðgreiðslu á eindaga á hann samkvæmt lögunum að sæta álagi en einnig er heimild til að fella álagið niður   ef launagreiðandi færir gildar ástæður sér til afsökunar og  skattstjóri meti það í hverju einstöku tilviki hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi.

„Vegna þeirra truflana sem orðið hafa á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið telur ráðuneytið að gildar ástæður séu til að beita þeirri heimild (...) til tímabundinnar niðurfellingar álags vegna skila á staðgreiðslu fyrir september. Hefur ráðuneytið í dag beint þeim tilmælum til skattstjóra og tollstjórans í Reykjavík að fellt verði  tímabundið niður álag vegna þeirra skila á staðgreiðslu sem á eindaga eru í dag og gildi sú niðurfelling í eina viku eða til 22. október nk," segir í tilkynningu ráðuneytisins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert