Jákvæður fundur í London

Sverrir Haukur Gunnlaugsson fundaði með fulltrúum sparifjáreigenda á morgun.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson fundaði með fulltrúum sparifjáreigenda á morgun. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra Íslands í Lundúnum, átti í dag fund með fulltrúum breskra sveitarfélaga. Var fundurinn að sögn fjölmiðlafulltrúa jákvæður.

Sverrir Haukur upplýsti fulltrúa sveitarfélaganna um stöðu mála í viðræðum breskra og íslenskra stjórnvalda í tengslum við yfirstandandi neyðarástand á fjármálamörkuðum og var ákveðið að halda samtölum áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert