Eimskip flaggar íslenska fánanum

Íslenski fáninn
Íslenski fáninn

Eimskip hefur ákveðið að flagga fána Íslands daglega, sem tákn um samstöðu Íslendinga í þeim erfileikum sem nú steðja að þjóðinni. Í gær var greint frá því að olíufyrirtækið N1 hefði ákveðið að flagga íslenska fánanum við starfsstöðvar fyrirtækisins.

Ólafur William Hand forstöðumaður markaðssviðs Eimskips segir í fréttatilkynningu, þetta er gert að fordæmi N1, sem átti þessa frábæru og einföldu hugmynd um hvernig mætti þjappa þjóðinni saman.

Eimskip vill hvetja fyrirtæki og einstaklinga til að fara að þeirra fordæmi og munum við ekki láta okkar eftir liggja í þeim efnum. Skrifstofur Eimskips um allan heim munu draga íslenska fánann að húni frá og með deginum í dag og gera það um óákveðinn tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka