Lögreglan hefur upprætt fíkniefnaframleiðslu í húsi á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum mbl.is er umfang framleiðslunnar töluvert mikið. Samkvæmt upplýsingum frá starfsfólki í fyrirtækjum í grennd við húsið hafa lögreglumenn verið að störfum í húsnæðinu í allan dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur boðað til blaðamannafundar í dag klukkan 16 vegna málsins.