Á þriðja hundrað að hætta

Miklir óvissutímar eru framundan í byggingariðnaði og erfitt að segja til um hvað framtíðin ber í skauti sér. Loftur Árnason, framkvæmdastjóri ÍSTAK, segir ljóst að mikið samdráttarskeið sé framundan. Á þriðja hundrað starfsmenn hætta störfum hjá ÍSTAK um næstu mánaðarmót.

Loftur segir að líklegt að mikil stöðnun verði í byggingariðnaði næstu árin ef ekki komi til opinberar stórframkvæmdir. „Staðan er sú að það verður mjög mikið atvinnuleysi í byggingariðnaði ef ekki koma til mannaflafrekar framkvæmdir.“

Loftur segir orðið ljóst að mikið umfram framboð sé á fasteignamarkaði, einkum á höfuðborgarsvæðinu, og í þeirri stöðu sé ekki ráðlegt að byggja íbúðarhúsnæði til sölu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert