Björgunarsveitin Garðar á Húsavík fór á áttunda tímanum í kvöld til aðstoðar fólki á á Dettifossvegi hinum vestari. Hafði fólkið fest jeppabifreið sína og óskuðu eftir aðstoð. Ekki var staðsetning alveg á hreinu en björgunarsveitarmennirnir, sem fóru til bjargar voru komnir að bíl fólksins um tíuleytið í kvöld.