Nefnd sem Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði fyrir tæpu ári til að fjalla um hvernig tryggja megi sem best milliliðalausa sönnunarfærslu í meðferð sakamála, leggur til komið verði á fót millidómstigi þar sem eingöngu verði leyst úr sakamálum og þar fari fram sönnunarfærsla á nýjan leik. Nefndin leggur til að hið nýja dómsstig beri heitið Landsyfirréttur.
Þetta kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins. Þar segi rað nefndin leggi til að til dómstólsins verði áfrýjað þeim sakamálum sem nú sæta áfrýjun til Hæstaréttar. Leggur nefndin til að hið nýja millidómstig beri heitið Landsyfirréttur. Björn Bjarnason kynnti álit nefndarinnar í ávarpi sínu á hátíðarmálþingi lagadeildar Háskóla Íslands í dag.
Í„ tillögum nefndarinnar kemur fram að málum yrði skotið frá hinu nýja millidómstigi til Hæstaréttar á grundvelli áfrýjunarleyfis en eftirleiðis fjalli Hæstiréttur einungis um lagaatriði og ákvörðun refsingar. Hins vegar verði ekki unnt að endurskoða niðurstöðu millidómstigs um mat á sönnun og sönnunargildi munnlegra framburða. Þá verði öllum ágreiningsmálum varðandi réttarfar og rannsóknaraðgerðir í héraðsdómi skotið til millidómstigsins með kæru.
Nefndin leggur til að við dómstólinn starfi að lágmarki sex dómarar auk annars starfsfólks og að dómstóllinn starfi í tveimur þriggja manna deildum. Þá verði almennt fallið frá fjölskipuðum dómi í héraði. Mál fyrir dóminum flytji ríkissaksóknari og saksóknarar við embætti hans, og hæstaréttarlögmenn.
Nefndin var skipuð þeim Rögnu Árnadóttur, skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, sem jafnframt var formaður, Ragnheiði Harðardóttur, þá vararíkissaksóknara, nú settum dómara við héraðsdóm Reykjavíkur, Símoni Sigvaldasyni, dómara við héraðsdóm Reykjavíkur og formanni Dómstólaráðs og Sveini Andra Sveinssyni hæstaréttarlögmanni. Ritari nefndarinnar var Gunnar Narfi Gunnarsson, lögfræðingur í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,“ segir á vef ráðuneytisins.