Þrír bílar lentu utanvegar í morgun vegna hálku sunnanlands. Bílvelta varð á Kotsströnd, einn bíll fór út af á Biskupstungnabraut og sá þriðji í Þrengslunum. Engin meiðsli urðu á fólki en bílarnir illa skemmdir. Fljúgandi hálka er á þessum slóðum og biður lögreglan fólk að aka varlega.