Fíkniefni fundust á Akureyri

Lögreglan á Akureyri handtók á föstudagskvöld tæplega tvítugan mann sem reyndist vera með 2 grömm af amfetamíni í fórum sínum. Í framhaldinu var gerð húsleit á heimili hans þar sem fundust 3 grömm af amfetamíni til viðbótar og 3 grömm af kannabisefni.

Auk þessa viðurkenndi maðurinn að hafa verið að selja og dreifa fíkniefnum á Akureyri. Lögreglan segir, að afskipti hafi í kjölfarið verið höfð afskipti af fimm einstaklingum. Allir voru látnir lausir að loknum skýrslutökum. 

Um s.l. helgi voru tveir   handteknir á Akureyri vegna gruns um akstur bifreiða undir áhrifum fíkniefna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert