Tvö innbrot voru tilkynnt til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Farið var inn um opinn glugga á Bónusvídeó í Lóuhólum í Breiðholti um klukkan 1.30, ekki er vitað hvort nokkru var stolið. Hitt innbrotið var framið í íbúðarhúsnæði vestarlega í Kópavogi.
Að sögn lögreglunnar urðu íbúar varir við umgang en þjófurinn var á brott þegar að var gáð og mun hann hafa haft ýmislegt smálegt af persónulegum munum með sér á brott.
Þar á meðal voru bíllyklar, fatnaður og fleira en bíllinn stóð þó eftir fyrir utan húsið þegar að var gáð.