Ráðningarsamningur Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar, hefur verið framlengdur til allt að tveggja ára. Í ljósi gjörbreyttra aðstæðna fór stjórn fyrirtækisins þess á leit við Friðrik að hann héldi áfram störfum sem forstjóri og var sú niðurstaða samþykkt samhljóða af stjórn Landsvirkjunar.
Í sérstakri bókun um ákvörðunina er vísað til efnahagsástandsins í landinu nú um stundir:
„Landsvirkjun
gegnir afar þýðingarmiklu hlutverki í uppbyggingu og rekstri
framleiðslustarfseminnar í landinu og vegur rekstur fyrirtækisins þungt
í fjármálum þjóðarinnar. Í ljósi aðstæðna, sem nú eru uppi í
efnahagsmálum og þjóðmálum, telur stjórn Landsvirkjunar brýnt að
tryggja festu og samfellu í stjórn fyrirtækisins. Við þessar aðstæður
hefur orðið að samkomulagi milli stjórnar og núverandi forstjóra að
framlengja gildandi ráðningarsamning um allt að tvö ár í samræmi við
ákvæði 8. gr. samningsins.“
Friðrik Sophusson hefur verið
forstjóri Landsvirkjunar frá árinu 1999. Síðastliðið sumar tilkynnti
hann stjórn áform sín um að láta af störfum í lok árs 2008. Við þau
tímamót leit stjórn Landsvirkjunar til þess, að framundan væri
viðamikil undirbúningsvinna við endurmat á stefnu fyrirtækisins svo og
endurskoðun á rekstrarfyrirkomulagi. Færi vel á því að nýr forstjóri
hæfi undirbúning þeirra verka.
Starf forstjóra var auglýst laust
til umsóknar 1. september 2008 og var umsóknarfrestur síðan framlengdur
til 26. september síðastliðinn. Alls bárust 55 umsóknir og var fjöldi
hæfra einstaklinga í hópi umsækjenda. Ráðningarferlið var í eðlilegum
farvegi og höfðu nokkrir umsækjenda verið kallaðir í viðtal, þegar
aðstæður í þjóðfélaginu breyttust á svipstundu á þann veg, að augljóst
var að meginviðfangsefni stjórnar og forstjóra næstu misseri yrði að
tryggja festu og stöðugleika í rekstri sem og trausta eftirfylgni við
undirbúning fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda.
Við þessar
aðstæður telur stjórn Landsvirkjunar afar brýnt að viðhalda traustum
samskiptum við helstu viðskiptavini og lánardrottna fyrirtækisins. Þar
skipta persónuleg tengsl og góð viðskiptasambönd meginmáli. Að vel
athuguðu máli þótti stjórn Landsvirkjunar því sérstök efni standa til
þess að fara fram á það við núverandi forstjóra að hann gæfi kost á
framlengingu gildandi ráðningarsamnings. Á þessum tíma er mikilvægt að
nýta áfram reynslu og þekkingu núverandi forstjóra og telur stjórn
Landsvirkjunar það best þjóna hagsmunum fyrirtækisins við úrlausn
þeirra verkefna, sem nú eru framundan."