Yfirheyrslur standa yfir

Árás á lögregluþjóna við störf er litin alvarlegum augum.
Árás á lögregluþjóna við störf er litin alvarlegum augum. mbl.is

Mennirnir tveir sem lögreglan leitaði að vegna árásar á tvo lögregluþjóna á aðfararnótt laugardags, voru handteknir í dag og eru í haldi lögreglu. Yfirheyrslu standa nú yfir. Þrír hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í viku vegna árásarinnar, sem átti sér stað í Hraunbæ í Árbæ. Þrír til viðbótar eru í haldi lögreglu. 

Tveir lögregluþjónar, karl og kona, voru lamin illa af hópi manna og voru þau flutt á slysadeild. Sauma þurfti fjögur spor í höfuð mannsins en konan marðist nokkuð á líkama. Meiðsl þeirra reyndust ekki alvarleg. Unnið er að rannsókn málsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert