Stjórn kvennahreyfingar Samfylkingarinnar skorar á forystu flokksins sem og ríkisstjórn að hafa jafnræði kynja að leiðarljósi við skipan í bankaráð hinna nýju banka.
„Framundan eru spennandi tímar sem krefjast nýrrar hugsunar og nýrrar nálgunar í anda sanngirni og réttlætis. Konur hafa því miður ekki komið mikið að uppbyggingu hins nýja hagkerfis eða fjármálamarkaðar undanfarinna ára en nú stöndum við á krossgötum nýrra tækifæra.
Það er krafa kvennahreyfingar Samfylkingarinnar að hæfar konur til jafns við hæfa karla verði skipaðar til starfa og í stafni þeirrar nýsköpunar sem er framundan. Þannig byggjum við upp nýtt Ísland í anda kvenfrelsis og jöfnuðar," að því er segir í ályktun.