350 þúsund kr. sekt fyrir fíkniefnavörslur

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í 350 þúsund króna sekt fyrir vörslur á rúmlega 78 grömmum af kannabisefnum sem tekin voru af honum við komuna til Vestmannaeyja í sumar.

Maðurinn kom með Herjólfi til Eyja í byrjun júlí með kannabisefnin og ætlaði að afhenda þau öðrum til sölu. Hann játaði sök. Hann hefur áður hlotið dóma fyrir hefningarlagabrot.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert