Hæsta fermetraverðið

Hæsta fermetraverð fasteigna í viðskiptum á höfuðborgarsvæðinu það sem af er þessu ári er í Sjálandshverfi í Garðabæ, 316.918 krónur. Næsthæst er verðið á svonefndu 101 svæði í Reykjavík, 310.804 krónur. Þetta kemur fram í samantekt Fasteignamats ríkisins.

Lægst er fermetraverðið í fasteignaviðskiptum í Vöngum í Hafnarfirði, 209.167 krónur, og í Seljahverfi í Reykjavík, 210.818 krónur.

Listi Fasteignamats ríkisins  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert