Í fyrsta sinn í sögu kokkalandsliðsins á Ólympíuleikum fékk liðið gull fyrir heita matinn í gær, að því er fram kemur á vef landsliðsins. Allt gekk mjög vel, þau voru öll mjög yfirveguð og útkoman eftir því sagði Alfreð Ómar Alfreðsson forseti Klúbbs matreiðslumanna í gær.
Nú er undirbúningur fyrir kalda borðið hafinn og verður ekkert sofið næstu sólarhringa, en borðið á að vera klárt og uppsett miðvikudagsmorgun.