Inflúensa A greindist hjá einu barni í byrjun september en engin tilfelli hafa greinst síðan þá. Landslæknisembættið segir í Farsóttafréttum sínum, að því sé ljóst að inflúensufaraldur sé ekki byrjaður enn sem komið er hér á landi og enn tími fyrir landsmenn að láta bólusetja sig.