Íslenska kokkalandsliðið vann til fernra verðlauna á Ólympíuleikum matreiðslumeistara sem lýkur á morgun. Keppni er nú lokið og fékk liðið tvenn gullverðlaun og tvenn silfurverðlaun.
Mikil ánægja er innan liðsins með árangurinn sem er sá besti hingað til á leikunum. Í fyrramálið verður verðlaunaafhending og þá verða einnig veitt verðlaun fyrir besta heildarárangur.
Nánari fréttir og myndir úr keppninni má sjá hér.