Ráðvillt ríkisstjórn og ósamstíga

Framsóknarmenn í Reykjavík átelja ríkisstjórnina harðlega fyrir aðgerða- og ábyrgðarleysi nú á ögurstundu í efnahagslífi þjóðarinnar. Í ályktun sem samþykkt var á kjördæmaþingi reykvískra framsóknarmanna í gær segir að það sé alls óásættanlegt að íslenska þjóðin búi við stjórnvöld sem margítrekað komi fram fyrir alþjóð ósamstíga og ráðvillt.

Ennfremur segir að Framsóknarflokkurinn hafi margsinnis á liðnum mánuðum vakið athygli á ýmsum hættumerkjum, lagt fram raunhæfar tillögur í efnahagsmálum og boðið fram krafta sína en því miður talað fyrir daufum eyrum ríkisstjórnarinnar.

Reykvískir framsóknarmenn segja að á tímum sem þessum skipti hver dagur miklu fyrir framtíð íslensks samfélags og brýnna sé en nokkru sinni fyrr að valdhafar og hagsmunaaðilar snúi bökum saman og gangi til verks af ábyrgð, fumleysi og með heill þjóðarinnar og ókominna kynslóða að leiðarljósi.

Annað lýsi ekki ábyrgri stjórnun - annað sé ekki raunhæfur valkostur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert