Geir segir komu sendinefndarinnar afar jákvæða

Norska sendinefndin
Norska sendinefndin mbl.is/Haraldur Guðjónsson

Norska sendinefndin mun í dag ræða við íslensk stjórnvöld um efnahagsástandið á Íslandi og kanna hvort Norðmenn geti lagt Íslendingum lið. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir komu nefndarinnar afar jákvæða og að íslensk stjórnvöldi bindi miklar vonir við viðræðurnar.

„Koma nefndarinnar er afar jákvæð og við bindum vonir við að eiga árangurs­ríkar viðræður við þessa nágranna okkar og frændþjóð,“ segir Geir  í tilkynningu.

Í norsku sendinefndinni eru fulltrúar frá norska fjármálaráðuneytinu, forsætisráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og norska seðlabankanum. Aðstoðarráðuneytisstjóri fjármála­ráðu­neytisins, Martin Skancke, fer fyrir nefndinni. Einnig er með í för fulltrúi sænskra stjórnvalda.

Nefndin mun eiga fundi með fulltrúum íslenskra stjórnvalda í dag og á morgun. Til umræðu verða m.a. staða efnahagsmála, hugsanlegar ráðstafanir eða aðstoð sem íslensk stjórnvöld gætu óskað eftir við norsk stjórnvöld og myndu nýtast til að draga úr áhrifum fjármálakreppunnar; og undirbúningur funda norrænu forsætisráðherranna í tengslum við Norðurlanda­ráðsþing í Helsinki í næstu viku.

Geir H. Haarde, segir í tilkynningu: „Noregur er næsti nágranni Íslands. Samband landanna byggist á traustum grunni, sem er saga þjóðanna og sameiginlegar menningarrætur. Mér þykir afar vænt um þann mikla stuðning sem Norðmenn sýna okkur með því að senda hingað fulltrúa sína og hve þeim er umhugað um að aðstoða okkur í þeim mikla vanda sem við okkur blasir. Það er þakkarvert að takast skyldi að skipuleggja þessa ferð með skömmum fyrirvara.“

Martin Skancke, formaður norsku sendinefndarinnar en hann er aðstoðarráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis …
Martin Skancke, formaður norsku sendinefndarinnar en hann er aðstoðarráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis Noregs mbl.is/hag
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert