Boðað hefur verið til fundar síðdegis með ráðherrum í ríkisstjórninni og fulltrúum íslensku embættismannanefndarinnar, sem átt hefur í viðræðum við breska embættismenn í gær og dag um tryggingar vegna Icesave reikninga Landsbankans í Bretlandi.
Engar fréttir hafa borist af gangi viðræðnanna við Breta og er ekki vitað hvenær þeim lýkur.