Hópur athafnamanna, sem nefna sig Vildarvini Siglufjarðar, hefur lýst yfir áhuga á að kaupa Sparisjóð Siglufjarðar sem á Sparisjóð Skagafjarðar. Fram kom í fréttum Útvarpsins, að fyrir hópnum fari Guðmundur Stefán Jónsson, viðskiptafræðingur í Reykjavík.
Þar kom fram að í hópnum væru líka Róbert Guðfinnsson, sem stýrði
Þormóði ramma á Siglufirði um tíma, Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi
alþingismaður, og Páll Samúelsson, sem áður átti Toyota á Íslandi.