Vilja upplýsingar um ósanngjarna meðferð á Íslendingum

Utanríkisráðuneytið óskar eftir staðfestum upplýsingum um  tilvik þar sem Íslendingar hafi orðið fyrir óþægindum eða ósanngjarnri meðferð erlendis, vegna ástandsins í efnahagsmálum.

Ráðuneytið leggur ríka áherslu á að fá upplýsingar frá fyrstu hendi og eru viðkomandi hvattir til að senda tölvupóst á netfangið borgarathjonusta@utn.stjr.is um tilgreind atvik.  

Markmið ráðuneytisins með þessu er að safna saman upplýsingum um atvik af þessu tagi til þess að hægt sé að fá skýra mynd af þeim vandamálum sem að almenningi steðja erlendis í beinum tengslum við núverandi aðstæður og bregðast við eftir atvikum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert