Aðgerðir Breta sköðuðu alla bankana

Talsmenn Landsbankans segja ekki rétt að aðgerðir vegna Icesave reikninga Landsbankans í Bretlandi hafi leitt til erfiðleika Kaupþings. Í yfirlýsingu sem bankinn sendi frá sér vegna ummæla í fjölmiðlum þar um, segir að aðgerðir yfirvalda í Bretlandi hafi verið óréttmætar og skaðað alla íslensku bankana. ekkert tilefni hafi verið til þeirra aðgerða vegna Landsbankans né að frysta eignir hans.

Þá segir í yfirlýsingunni; „Tilvísun Gordon Brown í stórfelldar tilfærslur á fjármagni frá Bretlandi til Íslands dögum fyrir fall bankanna átti ekki við um Landsbankann sbr. tilkynningu frá bankanum þann 10. október sl. Þarna var átt við aðra íslenska fjármálastofnun sem nafngreind var af hálfu opinberra aðila hérlendis. Landsbankinn var þvert á móti síðustu dagana fyrir aðgerðirnar að færa fjármagn til útibúsins í London, m.a til að greiða fyrir útflæði sem varð úr  Icesave eftir þjóðnýtingu Glitnis.
Aðgerðir breskra yfirvalda gagnvart Kaupþingi í London tengdust því ekki Landsbankanum beint.“

Þá segir í tilkynningunni að hitt sé ljóst að erfiðleikar í rekstri eins kerfisbanka í litlu landi leiði til erfiðleika fyrir hina bankana og því hafi keðjuverkun farið í gang sem skaðaði alla.

Grundvallarvandinn hafi verið hin alþjóðlega kreppa, viljaleysi stærri seðlabanka að styðja viðleitni Seðlabanka Íslands við að styðja fjármálakerfið hér og beinlínis óvinveittar aðgerðir Breta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert