Í DAG, laugardag, kl. 16 verður farin kyndilganga frá Austurvelli að Ráðherrabústaðnum undir slagorðinu Rjúfum þögn ráðamanna.
„Mætum öll á Austurvöll, til að hittast, til að sýna fram á að við höfum rödd, að við erum til. Sýnum hvert öðru samhygð, að við stöndum saman, og ef ekki einfaldlega til að finna að við erum ekki ein – og að við finnum til,“ segir í tilkynningu.
Fjöldi fólks hefur tilkynnt þátttöku og hafa nokkur félög og samtök sent pósta á sína félagsmenn, s.s. Samband ungra framsóknamanna, Samband ungra vinstri grænna og Femínistafélagið. Formaður Kvenréttindafélagsins og formaður Neytendasamtakanna hafa líka tilkynnt þátttöku.