Þrjár björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar leituðu í kvöld manns á bíl sem saknað var en talið var að hann væri á leið frá Egilsstöðum til Vopnafjarðar.
Veður hefur verið vont á svæðinu. Maðurinn fannst Héraðsmegin á Hellisheiði eystri fyrir nokkrum mínútum þar sem fólksbíllinn sem hann var á sat fastur.
Fyrr í dag sótti björgunarsveitin Hérað þennan sama mann þegar hann lenti í vandræðum á Öxi.