Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, sagði í Helsinki í dag, að Ísland eigi að endurskoða þá afstöðu, að sækja ekki um aðild að Evrópusambandinu og taka þátt í evrópska myntsamstarfinu til að vera betur búið undan efnahagsörðugleika í framtíðinni.
Björgvin sækir Norðurlandaráðsþing í forföllum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, og sat í morgun fund utanríkisráðherra Norðurlandanna.
AP fréttastofan hefur eftir Björgvini, að Samfylkingin vilji að sótt verði um aðild að Evrópusambandinu og fjármálakreppan á Íslandi nú muni örugglega leiða til aukinnar umræðu um kosti ESB-aðildar.